Ástvaldur Traustason
Lyklaþjálfun
Með þjálfarann í vasanum
„Það er mjög þægilegt að geta mætt þegar mér hentar en vera með þjálfarann í vasanum ef orða má það svo,“ segir Ástvaldur Traustason píanóleikari sem hefur nýtt sér lyklakerfi Heilsuborgar sem er sérhannað tölvutengt þjálfunarkerfi.
„Við Atli sonur minn ákváðum að fara saman í ræktina en það sem helst hafði aftrað okkur frá því að æfa saman var að við vorum í ólíku líkamlegu formi og þurftum á ólíkum æfingum að halda. Því hljómaði lyklaþjálfunin í Heilsuborg mjög spennandi en í henni felst að þjálfari hannar einstaklingsmiðaða þjálfunaráætlun og setur á þar til gerðan lykil. Við mætum svo með lykilinn í tækjasalinn og fylgjum því prógrammi sem þjálfarinn hannaði fyrir okkur. Ég er t.d. með þrískipt prógramm og æfingarnar í hverju þeirra mismunandi. það finnst mér frábært því undir venjulegum kringumstæðum hefði ég örugglega freistast til að gera meira og minna sömu æfingarnar aftur og aftur.
Ég hef áður prófað að vera í tækjasalnum á eigin vegum og það kom mér eiginlega á óvart hversu mikill munur er á því og að nota lyklakerfið. Það er mun markvissara auk þess sem það hjálpaði mikið að þjálfarinn fór vel yfir æfingarnar og rétta líkamsbeitingu í upphafi.
Ég get svo fengið nýtt prógramm á lykilinn eftir því sem getan eykst sem viðheldur fjölbreytileika æfinganna“.
